Trúnaðaryfirlýsing
Við tökum persónuvernd og friðhelgi einstaklinga mjög alvarlega. Þessi trúnaðaryfirlýsing útlistar hvernig upplýsingum er safnað við notkun þessarar vefsíðu, hvernig upplýsingarnar eru geymdar og hvernig þær eru nýttar.

Við notum IP-tölur notenda til að greina vandamál á vefþjónum okkar og hafa umsjón með vefsíðum okkar. Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Frost & Funi miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Gagnasöfnun
Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru meðal annars nafn og netfang. Frost & Funi notar þessar upplýsingar til að bæta þjónustu, halda utan um fyrirspurnir o.þ.h. Gögnin sem safnað er eru geymd á vefþjóni í að hámarki 1 ár. Notendur geta hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um þá verði fjarlægðar.

Vafrakökur
Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að þekkja aftur fyrri notendur.
Frost & Funi notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið.

Frost & Funi notar Google analytics til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn.

Upplýsingarnar sem safnað er eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar sem safnað er eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

SSL skilríki
Vefurinn notast við svokölluð SSL-skilríki. Það þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.

Fyrirspurnir og bókanir
Á síðum vefsins er hægt að bóka borð í matsal í gegnum þar til gert form, þar sem notendur gefa upp netfang sitt svo hægt sé að fylgja bókununni eftir. Þessar skráningar eru geymdar í að hámarki 1 ár í vefumsjónarkerfinu.

Aðrir vefir
Reglur Frosts & Funa um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans. Vefir sem vísað er í af vef Frosts & Funa eru utan ábyrgðar Frosts & Funa.


Hægt er að hafa samband í gegnum info@frostandfire.is til að gera athugasemdir eða fá frekari upplýsingar.
UM OKKUR
Fyrsta flokks hótel í töfrandi umhverfi – aðeins 30 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Dýfðu þér í heitar náttúrulaugar, dekraðu við þig í mat og drykk og njóttu einstakrar náttúrfegurðar í rólegu umhverfi.
HAFA SAMBAND
Hverhamar, 810 Hveragerði
483 4959
8:00–23:00 (lau-sun, 8:00–20:00)
info@frostandfire.is
Við svörum innan sólarhrings
© Frost & Fire Hotel. All Rights Reserved.