Gestir okkar hafa aðgang að 12 metra sundlaug, heitum pottum á árbakkanum og gufubaði ásamt útisturtu. Við gistiheimilið eru heitir hverir sem notaðir eru til upphitunar húsa, lauga og gufubaðs allan ársins hring.
Það er einstök tilfinning að sitja í heitum potti við árbakkann á stjörnubjörtu köldu vetrarkvöldi eða svamla í sundlauginni eftir frískandi göngutúr og skjótast nokkrum sinnum í gufubað. Svo taka við gestum þægileg uppábúin rúm með þeim ævintýrum sem þar gerast.
Gestir sofna við niðinn frá ánni og baða sig í heitum laugum áður en haldið er áfram för. Auk dægilegrar hvíldar mýkir gufan húð gesta og ýtir til hliðar allri þreytu um leið og hún örvar blóðrásina.
Við Varmá og í Reykjadal ofan við Hveragerði eru svo heitir lækir þar sem göngufólk getur hvílt lúin bein og baðað sig. |