Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

 

Öll herbergi eru útbúin af natni með þægindi og vellíðan gesta í fyrirrúmi. Herbergin eru 17 talsins, öll tveggja manna, með sérbaði og sjónvarpi.  Í níu herbergjum er auk þess hægt að búa um aukarúm. Þau eru vel búin fallegum og þægilegum húsgögnum og skreytt með íslenskri nútímamyndlist. Í herbergjunum er internettenging.

Íslensk myndlist eftir úrvals listamenn síðustu aldar gleður augu gesta í öllum herbergjum. Þar af eru 8 herbergi tileinkuð sérstökum málara og bera nafn listamannsins. Málararnir eru Arnar Herbertsson Bragi Ásgeirsson, Georg Guðni Hauksson, Jóhanna Kristín Yngvadóttir, Jón Engilberts, Karl Kvaran, Óskar Magnússon og Þorvaldur Skúlason.
Sjá nánar á www.umm.is

Úr herbergjum er útsýni yfir Varmá, hveri á árbakkanum og útsýni til Reykjafjalls og dalanna (Reykjadals, Grændals og Gufudals) fyrir ofan Hveragerði. Hvert herbergi er því heimur útaf fyrir sig á árbakkanum, fullt af nútímamyndlist inní margbreytilegri íslenskri náttúru.

      skoðið listagallerý til að sjá fleiri myndir