Í veitingastofu er boðið uppá morgunverð og kvöldverð úr fyrsta flokks hráefni, matseðil þar sem lögð er áhersla á fáa einfalda rétti og víntegundir, morgunverð, kvöldverð og nestispakka.
Einnig geta gestir fengið létt vín með mat og koníak/líkjör með kaffi. Til matargerðar er valið fyrsta flokks hráefni, saltfiskssteikur frá Eðalfiski í Hauganesi, silungur sem ræktaður er í sveitinni og sérvalið lambafilé frá Kjarnafæði á Akureyri.
Á undan aðalrétti er súpa kvöldsins með heimabökuðu brauði og á eftir kaffi og einnig er hægt að fá eftirrétt. Auk þess bjóðum við upp á Egils gullöl, Grolsch bjór og gosdrykki. Gestir geta pantað nestispakka að kvöldi fyrir náttúruskoðunar- eða gönguferðir daginn eftir. |