Ingólfshöfði
Höfðinn er að mestu algróinn, þar er líflegt fuglabjarg og fagurt útsýni til Öræfasveitar og jökulsins og víðsýnt með ströndinni til beggja átta. Í Landnámu stendur að Ingólfur Arnarson, fyrsti landnámsmaðurinn hafi tekið land þar sem nú heitir Ingólfshöfði og hafði hann þar vetursetu. Þetta mun hafa verið árið 874. Á sumrin eru daglegar ferðir með ferðamenn í Ingólfshöfða frá Hofsnesi.
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
Frá Hofi er tíu mínútna keyrsla í Þjóðgarðinn. Sagt hefur verið að náttúrufegurð í Skaftafelli í Öræfum sé stórfenglegri en á nokkru öðru byggðu bóli á Íslandi. Stórleikur landslagsins er óvíða, ef nokkurs staðar, meiri og útsýni óviðjafnanlegt til hæsta fjalls landsins, yfir stærsta skriðjökul þess og víðáttumesta sand. Gróðurinn er gróskumeiri og fjölbreytilegri en víðast annars staðar á landinu.
Svartifoss
Frá tjaldstæðinu í Skaftafelli er u.þ.b. 30 mínútna ganga eftir Giljastíg að Svartafossi. Þetta er fjölfarnasta gönguleið innan Þjóðgarðsins og flestum auðveld. Hinn hvíti foss sem steypist fram af berginu niður í djúpan hyl er umlukinn svörtum stuðlabergsveggjum. Form, litir og tónar náttúrunnar spila hér verk sem á sér engan líka.
Jökulsárlón á Breiðamerkursandi
Enginn einn staður við hringveginn heillar ferðamenn jafnmikið og Jökulsárlón með sínum jakaflota. Hægt er að bregða sér í siglingu að sumarlagi milli ísjakanna og upp undir ísstálið. Frá Hofi er tuttugu mínútna akstur að Jökulsárlóni.
Útsýni og gönguleiðir
Í Öræfum eru ótal möguleikar á gönguferðum, styttri og lengri við hæfi hvers og eins. Gönguferð í Morsárdal og Bæjarstaðaskóg eða aðrar merktar gönguleiðir í Þjóðgarðinum bjóða uppá endalausan fjölbreytileika og áhrifamikil náttúrufyrirbrigði blasa við í hverju skrefi.
Ferðamannastaðir á Suðausturlandi
Skoða bæklingin Sveitin milli sanda (pdf)
|