• Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
Myndasíður:
Now Loading

 

 

Smellið hér til að fá stærri mynd

Smellið hér til að fá stærri mynd

smellið til að fá
stærri mynd

 

Óskar Magnússon (1915-1993)

Óskar Magnússon telst til hóps alþýðulistamanna í íslenskri myndlistasögu en hann, ásamt konu sinni Blómeyju Stefánsdóttur, fékkst við myndvefnað og sýndu þau teppi sín á sýningum bæði hér og erlendis. Óskar hlaut enga formlega myndlistarmenntun, hann vann sem verkamaður hjá Eimskip, en átti sér þann draum að túlka hugarsýn sína og skoðanir á listrænan hátt. Óskar hafði mjög ákveðnar skoðanir og hann yfirgaf samfélag mannanna á ákveðnum tímapunkti vegna ósættis við borgaryfirvöld sem ákváðu að rífa hús hans til að leggja stofnbraut. Óskar hafði sjálfur byggt húsið sitt í Reykjavík og það var býsna sérkennilegt og bar frumlegri hugsun og sérvisku hans vitni. Óskar reisti sér og konu sinni lítinn kofa á Hellisheiði sem var jafnan nefndur, á „Fjallinu“ en hann stóð ekki fjarri Skíðaskálanum í Hveradölum. Óskar og Blómey bjuggu á fjallinu í níu ár við frumstæðar aðstæður og í sambýli við óblíð veðuröfl. Þar ófu þau saman og vöktu athygli fyrir handverk sitt og hina sjálfskipuðu útlegð. Óskar óf margvíslegar myndir, uppáhaldsmyndefnið var átrúnaðargoð hans, Jósef Stalín, en hann óf einnig fjölskrúðug veggteppi í anda nævískrar hugsunar þar sem draumurinn um að lifa í sátt og samlyndi við villta náttúruna er áberandi. Einnig voru íslensku þjóðskáldin svo og ýmis þjóðleg minni hugðarefni Óskars og tilefni til margvíslegrar myndsköpunar.