Georg Guðni (1961)
Georg Guðni Hauksson fæddist í Reykjavík árið 1961. Eftir að hafa lokið prófi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1985 hélt hann til Hollands í framhaldsnám í myndlist eins og margir af hans kynslóð íslenskra listamanna. Þar stundaði hann nám við Jan van Eyck Akademie í Maastricht. Fyrsta einkasýning Georgs Guðna vakti athygli fyrir þá endurnýjun á íslenskri landslagshefð sem birtist í málverkum hans. Málverk hans af fjöllum einkennast af marglaga littónum þar sem einfaldleiki og andrúm viðfangsefnisins hefur forgang. Georg Guðni hefur sagt að hann máli ekki ,,eftir” viðfangsefni sínu, fjöllum eða landslagi, heldur málar hann eftir minni og hugartengslum við staðinn. Þessi hljóðlátu verk sem hann skapar verða eins og tákn og vísa ekki til neins staðar heldur til tilfinninga sem skapast geta á ólíkum stöðum við ólíkar aðstæður í íslenskri náttúru.
|