• Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
  • Image
Myndasíður:
Now Loading

 

 

Smellið hér til að fá stærri mynd

smellið til að fá
stærri mynd

 

Arnar Herbertsson (1933)

Arnar fæddist á Siglufirði árið 1933 og stundaði nám í Myndlistarskólanum í Reykjavík frá 1959-1967. Hann lærði einnig grafík hjá Einari Hákonarsyni árið 1970. Arnar kom fram á 7. áratugnum, hann var félagi í SÚM hópnum en í honum voru ungir myndlistarmenn sem boðuðu nýja sýn á myndlistina í landinu. Þessir listamenn voru ólíkir innbyrðis hvað skoðanir og listhugmyndir snerti en sameiginlegur vilji þeirra var sá að hleypa íslenskri myndlist inn í nýja tíma og stefna eins langt frá þeirri myndlist sem ríkt hafði, þ.e. hinni óhlutbundnu formhyggju sem kynslóðin eftir síðari heimsstyrjöldina hafði unnið eftir.
Arnar hefur á ferli sínum unnið við grafík, teiknun og málverk og fjallar í verkum sínum um samtímann, til dæmis samband manns og umhverfis svo eitthvað sé nefnt. Myndir Arnars hafa þróast til nokkuð sérstæðs myndheims. Í þeim er oft að finna sálrænan þankagang, þar sem myndir eru innan og utan við tíma og rúm og notkun tákna er ríkjandi. Um 1992 tileinkaði Arnar sér afar sérstæðan málarastíl, sem byggir á brotakenndri teikningu og má sjá tengingu við popplistina í þessari aðferð og stíl. Súrrealískur myndheimur og andrúmsloft tímaleysis einkennir verk Arnars sem hefur haldið fáar einkasýningar á ferlinum en tekið þátt í þeim mun fleiri samsýningum hérlendis og erlendis.